Leita í fréttum mbl.is

Kýrhausinn og margbreytileiki hans

Í kýrhausnum leynist margt skemmtilegt. Meðal annars hefur komið út úr honum að hin margtuggna tugga um að tvær þjóðir lifðu í þessu landi, er e.t.v. rétt. Önnur býr á höfuðborgarsvæðinu og hin í dreifbýlinu. Margur dreifbýlisbúinn trúði ekki sínum veðurbörðu eyrum þegar umræðan um sláturgerð og safna vetrarforða fór á flug. Allir sem vettlingi gátu valdið og hinir líka vildu gera slátur og safna kjöti í kistur sínar. Margir höfðu aldrei gert slíkt fyrr eða ekki í afar mörg ár. Vambir seldust sem aldrei fyrr og margur missti af því að kaupa góssið sem seinn var til. Rétt eins og á fjármálamörkuðunum. Á landsbyggðinni fannst ýmsum þessi umræða ögn skondin enda við oft sein að fatta. Flestar konur til sveita hafa gert slátur í ómunatíð. Tekið svið, hakkað kjöt, gert bjúgu, úrbeinað að besta hyggjuviti hvern lambsskrokkinn á fætur öðrum. Búið til rúllupylsur og komið jólahangiketinu í reyk. Haustverkin hafa meðal annars falist í þessu. Líklega gerði sveitamaðurinn sér litla grein fyrir því að í útrásinni væri þetta ekki til siðs, enda náði hún minna í dreifbýlið.

Sumarið var gjöfult og tíðin góð. Sumarhúsaeigendur urðu sólbrúnir. Bændur náðu góðum heyjum, lax gekk í árnar sem aldrei fyrr. Á stað var laxamergðin þvílík að hægt var að ganga bakka á milli á laxabökum. Túristarnir heldur færri en stundum en mun fleiri báðu um leyfi til að tína ber. Fleiri sáust í skógarlundum við sveppatínslu.

Helstu áhyggjuefni manna í sveitinni þetta haustið, sem flest önnur, er hvernig móðir náttúra muni meðhöndla land og lýð. Hvernig fé kemur af fjalli, hvort það heimtist, hver býður besta verðið fyrir dilkinn, verður mjólkurinnleggið á sama verði og verið hefur. Þess á milli tölum við um hvort eigi að kjósa nú eða síðar. Hvort menn hafi nú staðið sig eða ekki og hvernig þetta verði eiginlega með gengið. Ætla menn aldrei að koma því í lag, eða hvað? Minnisstæð er umræða eftir fall síðasta bankans í fjárhúsum á bæ einum. Þar var samankomin fjöldi manns, nýlega komin af fjalli, að leita að rollum. Ögn var reynt að stýra umræðunni að fjármálamarkaðinum sem er og var í upplausn. Það er að segja þeim markaði sem telur krónur og aura eða bréf sem eitt sinn voru einhvers virði. Því var snarlega snúið upp í annan fjármálamarkað, nýlega afstaðna Sauðamessu í héraðinu. Enda var þar lausafjárstaðan góð, fjárhirslur tryggar og engin rýrnun á fé. Mikið væri ljúft ef staðan væri víðar þannig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birna Guðrún Konráðsdóttir
Birna Guðrún Konráðsdóttir

Sjúkranuddari að mennt. Hef starfað sem blaðamaður, bæði fast- og lausráðinn. Lauk BA-gráðu við Háskólann á Akureyri í vor, 2015, og mun stunda meistaranám við sama skóla næstu misserin 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

235 dagar til jóla

Eldri færslur

2015

2012

2011

2010

2008

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 807

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband