Leita í fréttum mbl.is

Kæri þú

Kæri þú! Getur þú sagt mér hvað gerðist í þjóðfélaginu fyrir skömmu? Hér í sveitinni gerðum við ekki neitt sem verðskuldar það ástand sem nú ríkir. Við vorum ekki í útrás eða innrás. Við tökum náttúrunni eins og hún er. Stundum blíð og stundum stríð. Hér var bara einn að byggja höll og það var aðkomubankamaður.

Kæri þú! Getur þú sagt mér af hverju verðtryggða lánið mitt er orðið svona gífurlega hátt? Ég hef alla mína tíð borgað og borgað og borgað, af lánunum mínum. Aldrei lent í því að eignir mínar væru auglýstar á uppboði eða verið í óyfirstíganlegum fjárhagserfiðleikum, fyrr en kannski nú. Er það sanngjarnt að ég, sem aldrei hef átt mikið, ekki heldur endilega of lítið, skuli nú líða fyrir vaxtaverki einhverra sem áður gengu í of stuttum buxum, af því þeir uxu svo mikið. En draga nú skálmarnar í skítnum.

Kæri þú!Getur þú sagt mér af hverju þær aðgerðir sem kynntar hafa verið til að létta undir með þeim sem voru svo óheppnir að skulda eitthvað eru bara hjóm? Úrræðin sem minn banki bauð mér þegar talað var um frystingu lána var ekki einu sinni ljóskubrandari. Það var bara boðið að geyma greiðslurnar í þrjá mánuði og borga svo alla summuna í byrjun febrúar. Allt með fullri verðtryggingu og vöxtum. Það var ekki langvinnt frost.

Kæri þú! Getur þú kannski sagt mér hver getur gefið mér viðhlítandi svör og það sem fyrst. Ég er nefnilega með barn í menntaskóla og þarf að vita hvort ég get borgað fæðið og heimavistargjaldið, eða hvort barnið mitt þarf að hætta námi.

 


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birna Guðrún Konráðsdóttir
Birna Guðrún Konráðsdóttir

Sjúkranuddari að mennt. Hef starfað sem blaðamaður, bæði fast- og lausráðinn. Lauk BA-gráðu við Háskólann á Akureyri í vor, 2015, og mun stunda meistaranám við sama skóla næstu misserin 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

235 dagar til jóla

Eldri færslur

2015

2012

2011

2010

2008

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 807

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband